Filmmaker Magazine tók saman lista yfir það sem best þótti gert í kvikmyndagerð á fyrsta áratug þessarar aldar. Þar var klipping Valdísar Óskarsdóttur á Eternal Sunshine of the Spotless Mind valin besta klipping síðustu tíu ára, en á sínum tíma hlaut myndin meðal annars BAFTA-verðlaunin fyrir bestu klippingu. Af Valdísi er annars að frétta að hún er nú að leggja lokahönd á klippingu annarar myndar sinnar sem leikstjóri, Kóngavegs, sem verður að líkindum frumsýnd 26. mars.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.