2. febrúar 2010
Kvikmyndagerðarmenn ráða ráðum sínum

Kvikmyndagerðarmenn ráða nú ráðum sínum á fundum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á styrkjum til kvikmyndagerðar. Nú þegar framlög til Kvikmyndamiðstöðvar hafa verið skorin niður um 35% og RÚV hefur ákveðið að verja talsvert minna fé til kaupa á íslenskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum er útlit fyrir mikið atvinnuleysi í greininni og að ríkið verði af miklum skattpeningum.
 
Stofnaður hefur verið Facebook hópurinn Við viljum íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsefni þar sem tæplega 11.000 manns hafa skráð sig til þess að styðja málstað kvikmyndagerðarmanna. Enn fremur hefur verið stofnaður lokaður Facebook hópur fyrir fólk í geiranum sem getur þar rætt hugmyndir og leiðir til þess að koma málstað sínum á framfæri.

               Gerast áskrifandi

Gætið að réttu netfangi.

Netfang: