Kitla úr kvikmyndinni Óróa hefur verið sett á netið. Órói er mynd um unglinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi hinna fullorðnu. Myndin er byggð á bókum Ingibjargar Reynisdóttur Strákarnir með strípurnar og Rótleysi, rokk og rómantík sem hafa notið mikilla vinsælda hér á landi.
Með aðalhlutverk í Óróa fara Atli Óskar Fjalarsson, Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm, Haraldur Ari Stefánsson, Elías Helgi Kofoed-Hansen, Birna Rún Eiríksdóttir, María Birta Bjarnadóttir, Kristín Pétursdóttir, Vilhelm Þór Neto.
Hér má sjá kitluna: http://www.youtube.com/watch?v=0BOt_nDBzSw
Hér er Facebook síða Óróa: http://www.facebook.com/home.php?#!/oroifilm?v=wall&ref=ts
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.