5. febrúar 2010
Forspár Boðberi

"Þetta er myndin sem yfirvaldið vill ekki að þú sjáir." Þessi lýsing Hjálmars Einarssonar, leikstjóra og handritshöfundar, á Boðbera, hans fyrstu mynd í fullri lengd, nær kjarna hugmyndarinnar líklega ansi vel. "Ég bjó í Tékklandi í fimm ár og lærði kvikmyndagerð í FAMU í Prag. Svo kom ég aftur heim og var útlendingur í eigin landi, þaðan spannst sagan, hún er um fólk sem upplifir sig sem jaðarhóp og ræðst svo á auðvaldið." Þannig lýsir Hjálmar tilurð Boðbera, sem óhætt er að segja að hafi reynst flestum myndum forspárri um nýliðna atburði, því hún var tekin upp að mestu leyti árið 2008.
 
Hryðjuverkaárásir gagnvart auðvaldinu og stjórnvöldum eru kannski fullsterk orð til þess að lýsa ástandi síðasta vetrar, en stemningin í myndinni rímar engu að síður sterklega við atburði síðasta vetrar, sem fylgdi í kjölfar sumarsins þegar hún var tekin upp. Og hún reyndist forspá um fleira. Þráinn Bertelsson leikur þingmann í myndinni, löngu áður en hann fór í framboð. "Og nýlega var skotárás í Seljahverfinu, hjá okkur var skotárás í húsinu við hliðina á."
 
Og það er skotið á alla, í þessum heimi er engin alsaklaus. "Aðalpersónan er pípari og allir líta niðrá alla. Nýríka liðið lítur niður á píparann, píparinn lítur niður á Pólverjann sem hann vinnur með og svo framvegis." Myndin var skotin á einum 60 dögum árið 2008, tökuliðið var lítið og álagið mikið: "Ég missti ein tólf kíló í tökum," segir leikstjórinn. En svo kom hrunið og ástæðan fyrir því að myndin varð ekki tilbúin fyrr var sú að það tók langan tíma að tryggja pening í eftirvinnsluna.
 
Hjálmar segir raunar að það þurfi að endurskoða allt starfsumhverfi íslenskrar kvikmyndagerðar. "Það er að koma ný bylgja ungra leikstjóra og filman er úti. Filmuprint fer úr þremur milljónum upp í 7 milljónir við gengishrunið og annað hækkar eftir því. Það þarf líka að endurskoða hvernig myndir eru styrktar, fækka þessum stóru styrkjum og skipta þeim upp. Framtíðin er stafræn og þannig opnast grundvöllur fyrir menn að gera mun ódýrari myndir, án þess þó að þurfa að fórna gæðunum." Fjármögnun Boðbera var hins vegar af gamla skólanum. "Við fórum bara gömlu leiðina, það er búið að veðsetja hús. En svo eru margir hluthafar í myndinni."
 
Hjálmar segir stemninguna töluvert öðruvísi en í fyrri bíómyndum íslenskum. "Þetta er annar tónn, þetta er svona Donnie Darko meets Taxi Driver. Þá er mikið unnið með hljóðið sem er í höndum Birgis Tryggvasonar, en Karl Pestka semur tónlistina." Pestka er Bandaríkjamaður sem hefur búið hér í tvö ár og Hjálmar lýsir tónlistinni sem hálf-synfónískri. "Það er spilað á rafmagnsfilður í bland við hefðbundin strengjahljóðfæri." Fleiri tónlistarmenn koma raunar nálægt myndinni, þar má nefna Brain Police, Feldberg og Lights on the Highway.
 
Það er svo Darri Ingólfsson sem leikur aðalhlutverk myndarinnar, en í öðrum helstu hlutverkum eru Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson, Magnús Jónsson, Pétur Einarsson, Móeiður Júníusdóttir, Hjalti Rögnvaldsson og Gunnar Eyjólfsson Meðal annarra leikara má svo nefna Frosti Jón Runólfsson, Valgeir Skagfjörð, Guðmund Inga Þorvaldsson, Damon Younger, Brynju Valdísi Gísladóttur og Árna Pétur Guðjónsson, en alls munu vera yfir hundrað leikara í myndinni.
 
Það er Hákon Einarsson hjá Hersingu ehf. sem framleiðir myndina ásamt leikstjóranum í samstarfi við Kukl ehf. Edwin Krieg sér um kvikmyndatökuna og Jóhannes Tryggvason klippir. Þá er vert að geta Þórðar Karls Einarssonar sem sér um brellurnar, sem virðast vera öllu flóknari en í flestum íslenskum bíómyndum til þessa.
 
www.bodberi.com

               Gerast áskrifandi

Gætið að réttu netfangi.

Netfang: