Í gær hófst áttunda röðin af hinum vinsælu Bíódögum á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn og er dagskráin að þessu sinni helguð heimildamyndum frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.
Fyrsta kvöldið var í höndum Andra Snæs Magnasonar sem sýndu og ræddu um kvikmyndina Draumalandið sem hann og Þorfinnur Guðnason leikstýrðu, en samnefnd bók Andra kom út í Danmörku rétt fyrir jól.
Fimmtudaginn 11. febrúar mun kvikmyndafræðingurinn Birgir Thor Møller fjalla um þróunina í heimildarmyndum og Janus Bragi Jakobsson sýna mynd sína Herramenn. Þar að auki býður kvöldið upp á stuttmyndinar Magapína eftir Kára Schram og m.a. Green Land eftir Aka Hansen.
Að lokum, þann 18. febrúar, kynnir færeyski leiksstjórinn Katrin Ottarsdóttir sína nýjustu heimildamynd Sporin vaksa úr orðum. Myndin fjallar um rithöfundinn Jóanes Nielsen og er lokakaflinn í þríleik leikstjórans um færeyska lisatmenn og innblástur þeirra. Þess má geta að Katrín Ottarsdóttir var gestur á Kvimyndahátíð Reykjavíkur 2008 og Jóanes Nielsen á Bókmenntahátíð Reykjavíkur 2009.
Nánari upplýsingar um Bíódagana á www.bryggen.dk/biodage
Miðasala: www.politikenbillet.dk/nordatlanten
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.