Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2010 voru kynntar í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 14.00 í dag. Flestar tilnefningar fá Bjarnfreðarson og Fangavaktin eða samtals átján. Næst á eftir kemur Mamma Gógó með átta tilnefningar. Tilnefningarnar í heild sinni er að finna á vef Edduverðlaunanna, www.eddan.is. Verðlaunahátíðin sjálf verður haldin laugardaginn 27. febrúar. Henni verður sjónvarpað beint í opinni dagskrá á Stöð 2.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.