The Good Heart eftir Dag Kára verður frumsýnd á Íslandi þann 4. mars 2010. Aðalhlutverkin eru í höndum Hollywood stórstjarnanna Brian Cox (Troy) og Paul Dano (Little Miss Sunshine, There Will Be Blood). Heimilislaus drengur Lucas (Paul Dano) kynnist Jaques (Brian Cox) úrillum kráareiganda sem hefur fengið fimm hjartaáföll sökum gjálífis. Jaques tekur Lucas undir væng sinn með það fyrir augum að arfleiða hann að kránni. Allt gengur eftir óskum þar til að drukkin flugfreyja (Isild le Besco) kemur áætlunum Jaques í uppnám.
The Good Heart er tekin upp hérlendis, í New York og Dóminíska lýðveldinu. Dagur Kári er handritshöfundur sem og leikstjóri auk þess sem hljómsveit hans og Orra Jónssonar Slowblow sér um tónlistina í myndinni. Dagur Kári sló eftirminnilega í gegn með Nóa albinóa og hefur The Good Heart nú þegar fengið glimrandi viðtökur. Myndin hefur verið seld til tuttugu og tveggja landa og fengið dreifingu meðal annars í Bandaríkjunum og Frakklandi.
Kvikmyndin hlaut verðlaun fyrir myndatöku Rasmus Videbæks á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg sem lýkur í dag.
Kvikmyndahátíðin í Gautaborg er helsta kvikmyndahátíð Norðurlanda. Dagur Kári hefur verið sigursæll á hátíðinni. Árið 2003 hlaut mynd hans Nói Albinói þrenn verðlaun og Voksne Mennesker hlaut aðalverðlaun hátíðarinnar Drekann árið 2006. http://www.giff.se/us/industry/festivalen/dragon-award.html
Her má finna stiklu úr The Good Heart http://www.zikzak.is/press-thegoodheart/Trailer/
Stiklan er með tvennskonar sniði:
1. TheGoodHeartTrailer720x480.mov (451 MB ? QuickTime skrá)
2. TheGoodHeartTrailer788x576.f4v (24,2 MB ? Flash skrá)
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.