8. febrúar 2010
Mamma veit hvað hún syngur fékk áhorfendaverðlaunin í Bilbao

Mynd Barða Guðmundssonar Mamma veit hvað hún syngur fékk áhorfendaverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Bilbao. Myndin fjallar um ráðríka einhleypa móður sem eyðileggur öll ástarsambönd sonar síns, því hún vill eiga hann ein. Kvöld eitt segir hann henni að hann sé ástfanginn af öðrum strák og þá verður breyting á sambandi þeirra.

 

Aðalleikarar myndarinnar eru þau Helga Braga og Víðir Guðmundsson. Leikstjóri er Barði Guðmundsson leikari og flugþjónn. Framleiðandi er Hrafnhildur Gunnarsdóttir hjá Krummafilms og aðstoðarleikstjóri er Harpa Másdóttir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

               Gerast áskrifandi

Gætið að réttu netfangi.

Netfang: