Nú styttist óðum í Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, en hátíðin verður haldin dagana 23. september til 3. október næstkomandi. Dagskrá hátíðarinnar er í mótun, en búist er við því að um 100 kvikmyndir verði sýndar á hátíðinni í ár. Nú þegar hafa 18 myndir verið staðfestar, og eru nokkrar afar áhugaverðar þar á meðal.
Fyrst ber að nefna hina afar umdeildu dönsku heimildarmynd Armadillo, sem fjallar um stríðið í Afganistan með algjörlega nýjum hætti. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes nú í vor, og vakti strax mjög hörð viðbrögð. Í myndinni fylgir leikstjórinn Janus Metz dönsku hermönnunum Mads og Daniel eftir um Helmand-héraðið, en þeir hafa bækistöðvar í herstöðinni Armadillo þar sem hart er barist við liðsmenn Talibana. Smátt og smátt láta þeir Mads og Daniel stríðið ná tökum á sér og í kjölfarið framkvæma þeir hluti sem vakið hafa hneykslun í Danmörku, bæði meðal almennings og háttsettra embættis- og stjórnmálamanna. Nánari upplýsingar um myndina eru á heimasíðu hennar.
Önnur dönsk mynd sem sýnd verður á RIFF er hin dramatíska Submarino, en svo skemmtilega vill til að Valdís Óskarsdóttir klippti myndina. Myndin, sem er eftir Thomas Vinterberg, var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín í febrúar, en hún tók þátt í keppninni um Gullbjörninn á hátíðinni. Myndin segir frá tveimur bræðrum sem gengu í gegnum mikla erfiðleika á æskuárunum. Ungir að árum voru þeir skildir að í kjölfar mikils áfalls sem reið yfir fjölskylduna. Í dag er annar þeirra ofbeldishneigður og langt leiddur áfengissjúklingur á meðan hinn er einstæður faðir sem glímir við eiturlyfjafíkn um leið og hann reynir að framfleyta syni sínum. Þegar þeir bræður hittast svo eftir langan aðskilnað er ljóst að einhvers konar uppgjör mun eiga sér stað. En uppgjör við hvað?
Þá má ekki gleyma enn einni danskri mynd sem sýnd verður á RIFF, verðlaunamyndinni R. Þar er á ferðinni frumraun þeirra Tobias Lindholm og Michael Noer, en myndin hefur slegið rækilega í gegn og hlaut meðal annars verðlaun sem besta norræna myndin á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg fyrr á þessu ári. Myndin segir frá ungum manni sem lendir í fangelsi eftir að hafa framið alvarlega líkamsárás. Hann hefur mikið sjálfstraust og lítur vel út en þarf að taka á öllu sínu til þess að lifa af í einu harðskeyttasta fangelsi Danmerkur. Þar kynnist hann líka ungum múslima sem á eftir að hafa mikil áhrif á líf hans innan múra fangelsisins.
Meðal annarra mynda má nefna:
Soul Kitchen eftir þýska leikstjórann Fatih Akin en myndir hans hafa verið sýndar á fyrri hátíðum, heimildamyndirnar The Genius and the Boy eftir sænska leikstjórann Bosse Lindquist og Good Fortune eftir Landon Van Soest frá Bandaríkjunum.
www.riff.is
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.