Samþykkt hefur verið í borgarráði að veita hlutafélagi um rekstur Heimilis kvikmyndanna í Regnboganum tólf milljónir króna í rekstrar- og framkvæmdastyrk. Því verður draumur kvikmyndaunnenda um listrænt kvikmyndahús í Regnboganum að veruleika. Stefnt er að því að rekstur hefjist í húsinu hinn 1. september næstkomandi.
Hugmyndin er að nýja kvikmyndahúsið sérhæfi sig m.a. í nýjum listrænum og eldri sígildum kvikmyndum auk þess sem áhersla verður lögð á fræðslu og starfsemi sem stuðlar að betra kvikmyndalæsi barna og unglinga.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.