Tökur eru hafnar á kvikmyndinni Gauragangur og sjaldan eða aldrei hafa verið haldnar eins umfangsmiklar leikprufur fyrir kvikmynd á Íslandi því um 700 unglingar voru prófaðir í hlutverk fyrir myndina í áheyrnarprufum sem haldnar voru um allt land síðastliðið sumar. Það eru þau Alexander Briem og Hildur Berglind Arndal sem hrepptu aðalhlutverkin, eftir langar og strangar prufur.
Alexander fer með hlutverk uppreisnarseggsins Orms Óðinssonar sem glímir við ástina og tilvistarkreppu unglingsáranna. Alexander er nýútskrifaður af leiklistarbraut Kvikmyndaskóla Íslands og hefur einnig vakið athygli með hljómsveit sinni Soundspell.
Hildur Berglind fer með hlutverki Lindu, draumadrottningar Orms. Hildur hefur leikið í uppfærslum Fjölbrautaskólans í Garðabæ og komst nýverið inn í leiklistardeild Listaháskóla Íslands.
Leikstjóri myndarinnar Gunnar Björn Guðmundsson sló heldur betur í gegn með mynd sinni Astrópíu árið 2007 og leikstýrði einnig síðasta áramótaskaupi Rúv við góðar undirtektir.
Gunnar Björn leikstjóri hefur í samvinnu við Zik zak kvikmyndir haft í undirbúningi gerð kvikmyndarinnar Gauragangur eftir metsölubók Ólafs Hauks Símonarsonar síðastliðin fjögur ár. Nú eru tökur loks hafnar en stefnt er að því að frumsýna myndina í íslenskum kvikmyndahúsum næsta vetur.
Með önnur hlutverk í myndinni fara Steinn Ármann Magnússon, Gunnar Helgason, Björk Jakobsdóttir, Víkingur Kristjánsson, Þorsteinn Bachmann, Edda Arnljótsdóttir, Stefán Jónsson, Eygló Hilmarsdóttir, Atli Óskar Fjalarsson, Sigurbjartur Atlason, Auðunn Lúthersson o.fl.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.