Undirbúningshópur um bíótek (cinematheque) í Regnboganum við Hverfisgötu hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem ákvörðun borgarráðs um að veita alls 12 milljónum króna til verkefnisins er fagnað. Þar er sagt að fénu verði annars vegar varið í breytingar á forsölum og framhlið hússins og hinsvegar í að ýta starfseminni úr vör.
,,Stefnt er að því að starfsemi hefjist í september og verður reglulega boðið uppá fjölbreytt úrval kvikmynda, gamalla og nýrra, úr öllum áttum og við hæfi allra aldurshópa. Í Regnboganum verður aðsetur kvikmyndahátíða og sérstök áhersla verður lögð á að kynna börnum og unglingum kvikmyndasöguna, innlenda og erlenda, með sérstökum skólasýningum. Stefnt er að því að þær hefjist á næsta ári. Þarna verður einnig að finna kaffihús og verslun með mynddiska, bækur og annað kvikmyndatengt efni. Verður Regnboginn því áfangastaður allra þeirra sem vilja dvelja í heimi kvikmyndanna til lengri eða skemmri tíma.
Undirbúningur þessa verkefnis hefur staðið yfir frá síðasta ári. Sérstakt félag um reksturinn verður stofnað á næstu dögum. Það verður í eigu fagfélaga kvikmyndagerðar, dreifingaraðila kvikmynda, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík og nýstofnaðra samtaka kvikmyndaunnenda. Auglýst verður eftir framkvæmdastjóra hins nýja félags nú um helgina. Kvikmyndamiðstöð Íslands hefur þegar tekið aðra hæð Regnbogahússins á leigu undir starfsemi sína. Þá er stefnt að því að Kvikmyndaskóli Íslands nýti húsnæðið yfir daginn virka daga. Húsið mun því verða nokkurskonar hjarta kvikmyndamenningar í landinu; heimili kvikmyndanna. Hús af þessu tagi eru meðal lykilmenningarmiðstöðva höfuðborga víðsvegar um heim, vinsælir áfangastaðir fyrir heimamenn jafnt sem ferðamenn. Þau má til dæmis finna á öllum Norðurlöndunum, velflestum Evrópulöndum og flestum stærstu borgum Bandaríkjanna og Kanada.
Hugmyndin er að Regnboginn bíótek verði samvinnuvettvangur sem flestra þeirra sem koma að kvikmyndamálum í landinu, þar með talið dreifingaraðila kvikmynda, íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Kvikmyndasafns Íslands og kvikmyndahátíða ásamt Kvikmyndaskóla Íslands og annarra menntunaraðila á sviði kvikmynda. Markmiðið er að veita almenningi nýja þjónustu á sviði kvikmynda.
Alhliða kvikmyndamenningarmiðstöð hefur aldrei verið til hér á landi fyrr. Það er sannfæring aðstandenda verkefnisins að þetta verði ekki aðeins til að efla uppbyggingu í miðborginni, heldur einnig til að auka breiddina í menningarflóru Reykjavíkurborgar, borgarbúum og landsmönnum öllum til hagsbóta, auk þeirra tugþúsunda erlendra ferðamanna sem árlega heimsækja borgina."
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.