Fyrirhugað félag um bíótek í Regnboganum óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Einnig er óskað eftir samstarfi við rekstraraðila kaffihúss og verslunar í húsinu. Stefnt er að því að Bíótek (Cinematheque) taki til starfa í Regnboganum við Hverfisgötu í haust. Boðið verður uppá daglegar sýningar á fjölbreyttu úrval kvikmynda, gamalla og nýrra, úr öllum áttum og við hæfi allra aldurshópa. Einnig verður Regnboginn vettvangur kvikmyndahátíða og hverskyns viðburða á sviði kvikmynda. Þá mun Kvikmyndaskóli Íslands vera með starfsemi í húsinu yfir daginn, virka daga. Ætlunin er að kaffihús og verslun með mynddiska, bækur og annað kvikmyndatengt verði í húsinu.
Annars vegar er leitað að manneskju í framkvæmdastjórastöðu sem hefur skýra sýn á starfsemi af þessu tagi. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af rekstri og stjórnun; geta sýnt frumkvæði, fagmennsku, samskiptahæfni og metnað í vinnubrögðum og hafa hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Þekking á kvikmyndadreifingu og kvikmyndasýningum er kostur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hins vegar er leitað samstarfs við rekstraraðila kaffihúss og verslunar í húsinu. Þetta gæti verið sami aðilinn eða sitthvor. Á kaffihúsinu verður lögð áhersla á gott kaffi, létt meðlæti og léttvín/bjór. Í versluninni verður boðið uppá mynddiska, bækur um kvikmyndir og hverskyns annan varning tengdan kvikmyndum.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2010. Nánari upplýsingar veitir Ásgrímur Sverrisson í síma 861 9126, netfang: asgrimur@talnet.is.
Umsókn og fylgigögn sendist á asgrimur@talnet.is, merkt ?Regnboginn bíótek?. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.