Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram dagana 23. september til 3. október næstkomandi. Dagskrá hátíðarinnar er að taka á sig mynd þessa dagana og hafa 36 myndir nú verið staðfestar. Þá bárust þær fréttir nýlega að bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jim Jarmusch verður sérstakur heiðursgestur hátíðarinnar.
Á meðal áhugaverðra mynda sem staðfest hefur verið að verði sýndar á hátíðinni má nefna bandarísku heimildarmyndina When The Dragon Swallowed The Sun. Myndin segir frá frelsisbaráttu Tíbet á síðustu arum, en leikstjóri myndarinnar, Dirk Simon, varði sjö arum í gerð hennar. Töluverðar líkur eru á því að hann fylgi myndinni til Íslands, og verði viðstaddur frumsýningu hennar hér.
Á meðal þeirra sem fram koma í myndinni eru stórleikarinn Richard Gere, Desmond Tutu og Dalai Lama. Þá leikur tónlistin stórt hlutverk í myndinni, en þeir Thom Yorke, Damien Rice og Philip Glass voru fengnir til að semja hana. Þá er gaman frá því að segja að eitt laga Bjarkar Guðmundsdóttur hljómar í myndinni, en Björk er ekki vön að leyfa notkun á tónlist sinni í kvikmyndum nema um sérlega vönduð verk sé að ræða.
Önnur heimildarmynd sem vert er að nefna er hin bandaríska Which Way Home sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta heimildarmyndin árið 2010. Leikstjóri myndarinnar, Rebecca Cammisa, fékk styrk frá Fulbright til að gera myndina árið 2006, en hún var svo frumsýnd á HBO sjónvarpsstöðinni árið 2009.
Myndin fylgir eftir nokkrum börnum sem reyna í örvæntingu sinni að komast frá hinum ýmsu löndum Suður-Ameríku, í gegnum Mexíkó og til Bandaríkjanna, í þeirri von að finna foreldra sína sem þar búa. Eins og búast má við ganga þessi ferðalög ekki áfallalaust fyrir sig, enda um afar ung börn að ræða.
Á meðal framleiðenda myndarinnar er leikarinn John Malkovich.
Loks má geta þýsku gamanmyndarinnar Soul Kitchen sem á eflaust eftir að slá í gegn á RIFF líkt og hún gerði á hinni virtu kvikmyndahátíð í Feneyjum þar sem hún hlaut sérstök verðlaun dómnefndar. Myndin segir á gamansaman hátt frá Þjóðverja af grískum ættum sem á veitingahús í Hamborg. Hann á í töluverðum erfiðleikum, bæði fjárhagslega og í einkalífinu, en vandræðin hefjast fyrst fyrir alvöru þegar hann missir öll tök á veitingastaðnum sínum.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.