2. nóvember 2006
Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2006

Tilnefningar til Edduverðlauna 2006 hafa verið opinberaðar. Kvikmynd Ragnars Bragasonar og Vesturports, Börn, fær flestar tilnefningar eða átta talsins. Mýrin eftir Baltasar Kormák og Blóðbönd eftir Árna Óla Ásgeirsson fá fimm tilnefningar hvor. Þá fær A Little Trip to Heaven eftir Baltasar Kormák þrjár tilnefningar og einnig teiknimyndin Anna og skapsveiflurnar eftir Gunnar Karlsson. Sjónvarpsefni stöðva 365 ljósvakamiðla (Stöð 2, NFS og Sýn) fær alls fimm tilnefningar, Sjónvarpið sjö og Skjár einn þrjár.

 


 

Eftirtalin verk og einstaklingar eru tilnefnd til Edduverðlaunanna 2006 - umsögn dómnefnda um hverja tilnefningu fylgir.

 

 

S J Ó N V A R P S Þ Á T T U R  Á R S I N S


Fyrstu skrefin

Framleiðandi FS production / Hlynur Sigurðsson. Stjórnandi Haukur Hauksson. Handrit Haukur Hauksson, Guðrún Gunnarsdóttir og Hlynur Sigurðsson.

Fléttað er saman upplýsingum um margt sem skiptir máli varðandi umönnun ungra barna og viðtölum við börn og fullorðna þannig að úr verður dýrmæt fræðsla og góð skemmtun. Eftirtektarvert er hve umfjöllun um fæðingu er gerð af miklu næmi og smekkvísi.

 

Græna herbergið

Framleiðandi Ríkisútvarpið-Sjónvarp. Stjórnandi Egill Eðvarðsson.
Í þessum þætti kemur vel í ljós hvernig hægt er, með einföldum hætti, að nýta sjónvarpsmiðilinn til að koma á framfæri fræðandi efni. Sígild tónlist fær nýja merkingu fyrir unga sem aldna leikmenn í hópi áhorfenda og nýr tónheimur opnast.


Innlit/útlit

Framleiðandi Skjár einn. Stjórnandi Hjördís Ýr Johnsson.

Þáttur um hönnun og lífsstíl, smekk og stíl í húsum og húsbúnaði. Sýnir hvernig unnt er að bæta umhverfi sitt og breyta því. Beinir athyglinni oft að góðum hugmyndum frekar en dýrum lausnum.


Kompás

Framleiðandi NFS / Stöð 2. Stjórnandi Marteinn Þórsson. Ritstjóri Jóhannes Kr. Kristjánsson.

Sýnir glöggt hversu miklu máli það skiptir að tengja atburði líðandi stundar við fólk af holdi og blóði. Einnig hversu mikilvægt er að hleypa kvikmyndagerð inn í fréttirnar. Hugtök á borð við ?eiturlyfjavandinn? og ?þolendur kynferðisbrota? öðlast allt aðra merkingu þegar við kynnumst þeim mannlega harmleik sem fylgir.


Sjálfstætt fólk

Framleiðandi Sagafilm. Stjórn Steingrímur Jón Þórðarson, Jón Ársæll Þórðarson

Litlar heimildamyndir sem hafa það að markmiði að sýna sannfærandi mynd af manneskjum, ýmist þekktu fólki eða fólki sem á sína sögu að segja þótt það hafi ekki verið í sviðsljósinu. Aðstandendur nálgast viðmælendur sína af virðingu og mýkt en gæta þess að sópa engu undir teppið.


 

H E I M I L D A M Y N D  Á R S I N S


Act Normal

Framleiðandi Poppoli / Ólafur Jóhannesson, Ragnar Santos, Helgi Sverrisson. Leikstjóri Ólafur Jóhannesson.

Svipmynd af enskum búddamúnki sem unnin er á 10 árum. Með ferðalagi fram og tilbaka milli Reykjavíkur og Thailands endurspeglar myndin vel þá tvo ólíku heima sem munkurinn er að kljást við. Þetta er skemmtilegt og á stundum tilfinningaríkt ferðalag manns sem er í leit að andlegri og veraldlegri vellíðan. Epísk saga, góð tónlist og vönduð vinnubrögð.


Ekkert mál

Framleiðandi Goðsögn. Leikstjóri Steingrímur Jón Þórðarson. Handrit Hjalti Árnason og Steingrímur Jón Þórðarson.

Heillandi mynd, sem sýnir hetjuna Jón Pál Sigmarsson, goðsögn í lifanda lífi, á afskaplega áhrifamikinn og tilfinningaríkan hátt. Sviðssetningar eru vel gerðar, og gömlum fréttamyndum og viðtölum er listilega ofið saman við, svo úr verður mjög vandlega unnið verk sem rennur áreynslulaust áfram. Myndin er í senn aldaspegill og minning um mann sem skildi eftir sig ódauðlega frasa sem enn lifa með þjóðinni: "I am the Viking!"


Skuggabörn

Framleiðandi Í einni sæng. Leikstjórn Lýður Árnason og Jóakim Reynisson. Handrit Þórhallur Gunnarsson og Lýður Árnason.

Rannsóknarblaðamaður leggur í leiðangur niður í undirheima til að rannsaka fíkniefnaheiminn. Mjög fín viðtöl bera uppi myndina og ljóst að mikil vinna liggur á bak við tengslin við viðmælendur. Myndin er ágætlega uppbyggð og grafík góð. Efnið á mjög sterkt erindi inn í samfélagið og er það auk viðtalanna, einn helsti styrkur myndarinnar.


 

S K E M M T I Þ Á T T U R  Á R S I N S


Jón Ólafs

Framleiðandi Ríkisútvarpið-Sjónvarp. Stjórnandi Jón Egill Bergþórsson. Umsjón Jón Ólafsson.

Hér er á ferð gömul og vel þekkt formúla af stúdíóviðtali sem sjaldan er áhugavert nema sem útvarpsefni, en hér nær stjórnandinn að gera það lifandi, frumlegt og skemmtilegt sem sjónvarpsefni.


KF Nörd

Framleiðandi Sagafilm / Anna Katrín Guðmundsdóttir. Stjórn og handrit Bjarni Haukur Þórsson.

Hér er vel farið með viðkvæmt viðfangsefni. Í stað þess að þátttakendur séu niðurlægðir, gera þeir grín að sjálfum sér og skemmta sjálfum sér og öðrum. Skemmtilegt, heldur athygli og er vel unnið tæknilega.  

  

Strákarnir

Framleiðandi Sagafilm. Stjórnandi Kristófer Dignus. Handrit Strákarnir og Kristófer Dignus.

Hér er að því er virðist óþrjótandi brunnur af frumlegum vitleysisgangi sem í flestum tilfellum er skoplegur og sleppur við það að verða hallærislegur. Uppsetning á þættinum er skýr og afmörkuð. Hér eru menn ekki að reyna að vera listrænir heldur skemmtilegir og tekst vel upp.


 

L E I K I Р S J Ó N V A R P S E F N I  Á R S I N S


Allir litir hafsins eru kaldir

Framleiðandi Ax / Ólafur Rögnvaldsson. Leikstjóri Anna Rögnvaldsdóttir. Handrit Anna Rögnvaldsdóttir.

Fagmannlega unnin glæpasería sem tekst að vera alþjóðleg og séríslensk í senn.


Sigtið

Framleiðandi Sigtið. Leikstjóri: Ragnar Hansson. Handrit Friðrik Friðriksson, Gunnar Hansson, Halldór Gylfason og Ragnar Hansson.

Einföld og ódýr sjónvarpssería sem sýnir fram á hversu langt er hægt að komast á góðum hugmyndum.


Stelpurnar

Framleiðandi Sagafilm, Magnús Viðar Sigurðsson, Kristinn Þórðarson og Harpa Elísa Þórsdóttir. Leikstjóri Ragnar Bragason. Handrit Sigurjón Kjartansson og fleiri.

Fagmannlega unnin gamansería með beittum húmor og skemmtilegu persónugalleríi.


 

K V I K M Y N D  Á R S I N S


Blóðbönd

Framleiðandi Pegasus / Snorri Þórisson. Leikstjóri Árni Ólafur Ásgeirsson. Handrit Árni Ólafur Ásgeirsson, Jón Atli Jónasson og Denijal Hasanovic.

Ljúfsár kvikmynd um erfitt umfjöllunarefni. Aðstandendum kvikmyndarinnar tekst að skapa persónur sem vekja samúð í ófullkomleika sínum.


Börn

Framleiðandi Vesturport. Leikstjóri Ragnar Bragason. Handrit Ragnar Bragason, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og leikhópurinn.

Áralöng spunavinna skilar sér á frábæran hátt í einkar trúverðugum og heilsteyptum persónum. Aðstandendum myndarinnar tekst með fáum miðlum að skapa sérstakan og eftirminnilegan söguheim.


Mýrin

Framleiðandi Sögn / Agnes Johansen, Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur. Leikstjóri Baltasar Kormákur. Handrit Baltasar Kormákur.

Í alla staði vel heppnuð kvikmynd eftir vinsælustu spennusögu Íslandssögunnar. Aðstandendum myndarinnar tekst að koma til skila flókinni sögufléttu án þess að það bitni á persónusköpun.

 

 

S T U T T M Y N D  Á R S I N S


Anna og skapsveiflurnar

Framleiðandi Caoz / Hilmar Sigurðsson og Arnar Þórisson. Leikstjóri Gunnar Karlsson. Handrit Sjón.

Fyndin og skemmtileg teiknimynd um unglingaveiki. Hreyfimynd í hæsta gæðaflokki hvað varðar "animation", raddsetningu og ekki síst tónlist.


Góðir gestir

Framleiðandi No 9 Production / Ísold Uggadóttir, Fura Ösp Jóhannesdóttir og Stephanie Perdomo. Leikstjóri Ísold Uggadóttir. Handrit Ísold Uggadóttir.

Ungur og upprennandi leikstjóri sýnir fram á skarpa frásagnargáfu. Athyglisverð mynd um óvenjulegar aðstæður.


Midnight

Framleiðandi, leikstjóri og handritsdöfundur; Eyrún Eyjólfsdóttir.

Vel heppnuð hreyfimynd þar sem tónlist og persónulegur stíll leikstjóra vinna vel saman.


 

Ú T L I T  M Y N D A R


Gunnar Karlsson

fyrir hönnun/útlit myndarinnar Anna og skapsveiflurnar.

Myndin er tilnefnd fyrir listavel skapaðan heim, skemmtilegt útlit persóna og áhugverðan stíl.


Karl Júlíusson

fyrir leikmynd í A Little Trip to Heaven.

Einstaklega vel skapaður heimur og sannfærandi leikmynd.


Óttar Guðnason

fyrir kvikmyndatöku í A Little Trip to Heaven.

Einstaklega vel tekin og lýst kvikmynd sem skapar andrúsmloftið sem hentar sögunni. Áferðarfallegar myndir sem myndu gera hvaða sögu sem er áhugaverða.

 

 

H L J Ó Ð  &  T Ó N L I S T


Kjartan Kjartansson

fyrir hljóðvinnslu í Allir litir hafsins eru kaldir.

Tæknilega er unnið afbragðsvel með hljóð í þáttunum, upptaka á tökustað einstaklega góð og öll eftirvinnsla til fyrirmyndar. Hljóðhönnun smekkleg og notkun hljóðs með eindæmum áreynslulaus og trúverðug. Hljóð, tónlist og klipping vinna vel saman. Kjartan Kjartansson og starfsfólk hans skila hér frábæru verki.


Mugison

fyrir tónlist í Mýrinni og A Little Trip to Heaven.

Tónlist Mugisons í Mýrinni og A Little Trip to Heaven er einstaklega vel heppnuð. Í báðum tilfellum hjálpar hún til við að skapa einstakt andrúmsloft, annars vegar séríslenskt, í nánum tengslum við atburðarrás Mýrarinnar og hinsvegar undirstrikar hún hina hráslagalegu einmanakennd sem persónurnar í A Little Trip to Heaven búa við. Tónlistin er notuð á smekklegan hátt, hvorki of né van.

 

Pétur Þór Benediktsson

fyrir tónlist í Börnum

Fersk, ágeng og persónuleg tónlist hjálpar til við að skapa stemmningu myndarinnar. Tónlistin er fjölbreytt, full af andstæðum, en markviss hljóðfæranotkun gefur henni heildstætt yfirbragð. Söngtextar notaðir á persónulegan hátt til að undirstrika einstök atriði. Tónlistin er notuð til að magna spennu en einnig til að skapa andrúmsloft einsemdar og sárinda.

 

 

L E I K S T J Ó R I  Á R S I N S


Árni Óli Ásgeirsson

fyrir Blóðbönd

Áhrifarík og tilgerðarlaus saga úr íslenskum samtíma sögð af fagmennsku og alúð. Vandað myndmál og mikil næmni í persónusköpun og frásögn einkenna verkið.


Baltasar Kormákur

fyrir Mýrina

Sérlega árangursrík kvikmyndaútfærsla vinsællar skáldsögu sem fangar áhorfandann. Leikstjóra tekst vel að búa til trúverðuga, alíslenska spennumynd.


Ragnar Bragason

fyrir Börn

Í óvenju ágengri kvikmynd birtist sterk og stundum nístandi sýn á íslenskan veruleika. Sterk persónusköpun vekur ríka samúð áhorfenda. Einkar vel heppnað samspil leikhóps og leikstjóra.

 

 

H A N D R I T  Á R S I N S


Anna og skapsveiflurnar

Höfundur Sjón.

Skemmtileg og ljóðræn saga sem er full af leiftrandi húmor og frumlega útfærðum persónum. Verkið ber vott um mikla næmni fyrir skondum smáatriðum og hárfínum tímasetningum.


Blóðbönd

Höfundar Árni Ólafur Ásgeirsson, Jón Atli Jónasson og Denijal Hasanovic.

Áhrifarík og tilgerðarlaus saga úr íslenskum samtíma sögð af fagmennsku og alúð. Vandað myndmál og mikil næmni í persónusköpun og frásögn einkenna verkið.


Börn

Höfundar Ragnar Bragason, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og leikhópurinn.

Í óvenju ágengri kvikmynd birtist sterk og stundum nístandi sýn á íslenskan veruleika. Sterk persónusköpun vekur ríka samúð áhorfenda. Einkar vel heppnað samspil leikhóps og leikstjóra.


 

L E I K A R I  Á R S I N S

 

Gísli Örn Garðarsson

fyrir hlutverk sitt í Börnum

Meðvitundarleysi siðblindrar persónu um eigin tilfinningar og annarra og flóttinn frá innri tómleika fær meitlaða birtingamynd í túlkun Gísla Arnar.

 

Hilmar Jónsson

fyrir hlutverk sitt í Blóðböndum

Með sparsömu látbragði í leik sínum, dregur Hilmar áhorfandann með sér í innra ferðalag, inn í mikinn sársauka manns sem missir fótanna í lífi sínu.

 

Ingvar E. Sigurðsson

fyrir hlutverk sitt í Mýrinni

Erkitýpan, hinn íslenski bóndi, klakabrynjaður úr hríðarveðrum lífsins er orðinn rannsóknarlögreglumaður í high-tech umhverfi. Í meðförum Ingvars E. Sigurðssonar, öðlast þessi hugmynd hold og blóð, hún verður að manni.

 

Nína Dögg Filippusdóttir

fyrir hlutverk sitt í Börnum.

Nína Dögg túlkar örvæntingu móðurinnar sem berst fyrir hversdagslegri tilveru sinni og barna sinna sterkt en þó af svo miklu jafnvægi, að aldrei er of eða van.


Ólafur Darri Ólafsson

fyrir hlutverk sitt í Börnum.

Karakter Ólafs Darra gengur ekki heill til skógar. Án þess að gera lítið úr hryggilegu hlutskipti persónunnar bregður Ólafur Darri yfir það mildandi húmor.

 

 

L E I K A R I  Á R S I N S  Í  A U K A H L U T V E R K I

 

Atli Rafn Sigurðarson

fyrir hlutverk sitt í Mýrinni

Föðurharmur verður að sturlun. Atli Rafn raðar hárfínum og nákvæmum augnablikum upp í eftirminnilega heild.

 

Halldór Gylfason

fyrir hlutverk sín í Ævintýrum í Stundinni okkar

Halldór Gylfason fer á kostum í ótal aukahlutverkum í Ævintýrum í Stundinni okkar. Halldór er fyndinn og elskulegur í senn í ólíkum karakterum.

 

Laufey Elíasdóttir

fyrir hlutverk sitt í Blóðböndum

Framsetning Laufeyjar á stúlku sem lifir fyrir daginn í dag og lætur í grunleysi heillast, tindrar af lífi undir hlédrægu yfirborðinu.

 

Margrét Helga Jóhannsdóttir

fyrir hlutverk sitt í Börnum

Margrét sýnir á sér einn eina hliðina sem stórleikkona í Börnum. Hún leikur móður fatlaðs manns sem hefur tekið þá ákörðun í lífinu að láta hann ganga fyrir eigin þörfum. Sérlega eftirminnileg frammistaða.

 

Ólafía Hrönn Jónsdóttir

fyrir hlutverk sitt í Allir litir hafsins eru kaldir

Einfeldningur Ólafíu Hrannar var túlkaður af virðingu og væntumþykju sem smitaði út frá sér - inn í stofur áhorfenda.


 

               Gerast áskrifandi

Gætið að réttu netfangi.

Netfang: