Undanfarin ár hefur RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, sýnt eina klassíska kvikmynd í bílabíói hátíðarinnar, og verður engin undantekning gerð frá þeirri reglu í ár. Það er John Waters smellurinn Cry Baby með Johnny Depp í farabroddi sem prýðir hvíta tjaldið að þessu sinni, en myndin fagnar einmitt 20 ára afmæli sínu í ár. Myndin verður sýnd í flugskýli 3 við Reykjavíkurflugvöll miðvikudagskvöldið 29. september næstkomandi og hefst sýningin kl. 21. Farið er að skýlinu í gegnum Skerjafjörðinn. Mögulegt verður að keyra inn í flugskýlið og verður hægt að ná hljóðrás myndarinnar í gegnum útvarpstæki í bílunum.
Eftir góðar viðtökur kvikmyndarinnar Mömmu Gógó í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar hér á landi hefur hún för sína um heiminn og verður frumsýnd á alþjóðlegum vettvangi á Kvikmyndahátíðinni í Toronto sem haldin verður 9. - 19. september. Mamma Gógó er eina íslenska sem valin var inn á Toronto að þessu sinni en Toronto hátíðin er ein stærsta kvikmyndahátið í heimi og er í A flokki hátíða á borð við hátíðirnar í Cannes, Berlin og Feneyjum.
Vetrarsýningar kvikmyndasafnsins hefjast í Bæjarbíói í kvöld. Fyrsta myndin er The Endurance: Shackleton´s Legendary Antarctic Expedition. Myndin fjallar um Suðurskautsleiðangur sem Ernest Shackelton lagði upp í árið 1914. Ætlunin var að ganga þvert yfir Suðurskautið, en það hafði aldrei verið reynt áður. Heimildarmyndin blandar saman upprunalegu efni, bæði ljósmyndum og hreyfimyndum, sem hefur varðveist frá leiðangrinum 1914 og nýju efni teknu upp á sömu stöðum. Sögumaður hennar er Liam Neeson.
Ýtarlega umfjöllun um myndina er að finna hér.
Nú er komið í ljós hvaða tólf myndir keppa um aðalverðlaun RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík í ár. Keppnisflokkurinn nefnist Vitranir (e. New Visions) en í þeim flokki tefla nýir leikstjórar fram sinni fyrstu eða annarri mynd í keppni um að verða útnefndir Uppgötvun ársins. Sigurvegarinn hlýtur svo aðalverðlaun hátíðarinnar, Gyllta lundann, sem var hannaður af Stefáni Pétri Sólveigarsyni.
Tvær af stærstu listahátíðum landsins, RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, og tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hafa ákveðið að leiða saman hesta sína og efna til samstarfs á kvikmyndahátíðinni nú í ár. Samstarfið felst í því að heimildarmyndin Where Is The Snow? sem fjallar um tónlistarhátíðina verður heimsfrumsýnd á RIFF nú í haust, auk þess sem einhverjir þeirra listamanna sem koma fram á Airwaves munu einnig koma fram á frumsýningunni.
Heimildarmynd Árna Sveinssonar, Með hangandi hendi, sem fjallar um hinn ástsæla söngvara Ragnar Bjarnason, verður heimsfrumsýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem fram fer dagana 23. september til 3. október næstkomandi. Þá mun Ragnar taka lagið við frumsýningu myndarinnar, en nákvæm tímasetning hennar verður auglýst þegar nær dregur.
Kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale, verður frumsýnd í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum þann 22. október. Í myndinni leika Diane Kruger og Dermot Mulroney bandarísk hjón sem í örvæntingarfullri leit að lungnagjafa handa dóttur sinni halda til Mexíkó til að finna ólöglegan líffæragjafa og lækni sem er tilbúinn til að framkvæma slíka aðgerð. Myndin var forsýnd í Bandaríkjunum síðasta vor, en þá var hún önnur tveggja mynda sem sýndar voru á ráðstefnu Berkeley-háskólans um ólöglega sölu og smygl á líffærum úr fólki. Inhale er þegar fáanleg á DVD og Blue Ray í Hollandi og hefur stikla úr myndinni verið sett á netið til kynningar. Hana má sjá hér.
Kvikmyndin algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið verður frumsýnd hinn 10. september næstkomandi. Myndin er fyrsta leikna kvikmyndin sem tekin er upp í þrívídd á Íslandi og Norðurlöndunum. Leikstjóri myndarinnar er Bragi Þór Hinriksson og skrifaði hann handritið ásamt Sverri Þór Sverrissyni, sem betur er þekktur undir nafninu Sveppi. Með aðalhlutverk fara Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Vilhelm Anton Jónsson (Villi naglbítur), Guðjón Davíð Karlsson (Gói).
Kvikmyndin The Good Heart eftir Dag Kára Pétursson verður framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Myndin keppir við fjórar aðrar norrænar kvikmyndir, Submarino frá Danmörku, Miesten Vuoro frá Finnlandi, Upperdog frá Noregi og Metropia frá Svíþjóð. Allar myndirnar sem tilnefndar eru verða sýndar á vegum Græna ljóssins dagana 29. október til 4. nóvember. Verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík þriðjudaginn 2. nóvember.
Norð Vestur, heimildarmynd eftir Einar Þór Gunnlaugsson, verður frumsýnd í október nk. Það er fyrri hluti, um 100 mín. að lengd, en seinni hluti er aðeins ætlaður fyrir sjónvarp og DVD, alls um 3 klst efni. Myndin rekur sögu björgunaraðgerða vegna snjóflóðsins sem féll á Flateyri fyrir 15 árum, í október 1995, sem var mannskæðasta snjóflóð á Íslandi í nær fjórar aldir.
Mikið hefur verið fjallað um kvikmynd Júlíusar Kemp, Reykjavík Whale Watching Massacre í dönskum fjölmiðlum undanfarið og vona danskir blaðamenn að myndin verði sýnd í kvikmyndahúsum þar í landi fljótlega. Jyllandsposten birti á dögunum nokkurra blaðsíðna umfjöllun um myndina og Extra bladet birti nýlega viðtal við hinn danska Torsten Metalstein Hvas sem ásamt Sjón samdi handritið að myndinni. Í viðtalinu segir Torsten meðal annars frá því hvernig hugmyndin að myndinni kviknaði á Oceania hótelinu í Varese á Ítalíu þar sem þeir Sjón hripuðu niður fyrstu drög að handriti á servíettur og annan tiltækan pappír í lobbýi hótelsins. Viðtalið má lesa hér.
Breska kvikmyndastofnunin BFI stendur fyrir fjáröflun til þess að bjarga níu þöglum myndum Hitchcocks frá árunum 1925-1929 og koma þeim á stafrænt form. Myndirnar eru: The Pleasure Garden (1925), The Lodger (1926), Easy Virtue (1927), The Ring (1927), Downhill (1927), Champagne (1928), The Farmer´s Wife (1928), The Manxman (1929) og Blackmail (1929).
Þrátt fyrir hitabylgju í júlí hafa upptökur á Gauragangi gengið vonum framar en sagan af Ormi og félögum gerist að vetri til og hafa leikarar því þurft að láta sig hafa það að leika í vetrarklæðnaði innandyra í góðviðrinu. Sögusvið myndarinnar er árið 1979 og hafa leikarar því verið klæddir polyesterpeysum og Alafossúlpum það sem af er sumri.
Kvikmynd Gríms Hákonarsonar Sumarlandið verður frumsýnd í september. Myndin fjallar um fjölskyldu sem rekur álfatengda ferðaþjónustu og býður upp á miðilsfundi. Grímur Hákonarson leikstýrði myndinni og skrifaði handrit ásamt Ólafi Agli Ólafssyni. Með aðalhlutverk fara Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kjartan Guðjónsson. Hægt er að sjá skemmtilega stiklu úr myndinni hér.
Stuttmyndin Knowledgy eftir þær Hrefnu Hagalín og Kristínu Báru Haraldsdóttur verður frumsýnd á Íslandi á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík nú í haust.
Um er að ræða einstaklega metnaðarfullt lokaverkefni úr Kvikmyndaskóla Íslands, en þær stöllur útskrifuðust þaðan í vor. Þær fengu hverja stjörnuna á fætur annarri til liðs við sig við gerð myndarinnar, en ber þar helstan að nefna bandaríska leikarann Leo Fitzpatrick sem fer með aðalhlutverkið. Margir muna eflaust eftir Fitzpatrick úr hinni umdeildu kvikmynd Kids (1995) en í henni fór hann með hlutverk aðalsöguhetjunnar Telly. Þá hefur hann einnig leikið í sjónvarpsþáttunum The Wire, sem mikið hefur verið rætt um hér á landi að undanförnu.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram dagana 23. september til 3. október næstkomandi. Dagskrá hátíðarinnar er að taka á sig mynd þessa dagana og hafa 36 myndir nú verið staðfestar. Þá bárust þær fréttir nýlega að bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jim Jarmusch verður sérstakur heiðursgestur hátíðarinnar.
Kvikmyndin Kóngavegur eftir Valdísi Óskarsdóttur hefur verið valin á kvikmyndahátíðina í Locarno í Sviss í ágúst. Myndin keppir í flokknum Filmmakers of the present. Valdís, Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarson verða viðstödd hátíðina.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.