Þorkell Sigurður Harðarson:
Kæru félagar, Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon.
Ég skrifa ykkur þetta opna lettersbréf í tilefni af umræðu sem átt hefur sér stað í kringum málefni RÚV, gjörninga Páls Magnússonar og orðræðu hans nú nýlega. Hluti af ástæðu þess að ég skrifa ykkur er einnig sú að við skipan Magnúsar Stefánssonar í stjórn RÚV nú nýverið virðist sem svo að ekki ríki skilningur á því hvernig málin ganga fyrir sig í samskiptum Útvarpsstjórans og stjórnarinnar sem á að bera ábyrgð og hafa eftirlit með efndum þjónustusamningsins um útvarp í almannaþágu.
Ég bið ykkur að hafa það í huga þegar þið lesið eftirfarandi að á endanum eruð það þið tvö sem berið ábyrgðina af gjörðum útvarpsstjóra og efndum hans á samningnum gagnvart okkur þjóðinni sem þið þiggið umboð tímabundið frá til að stýra landinu.
Steingrímur, þú ert fjármálaráðherra og ert því handhafi eina hlutabréfsins í RÚV ohf. Þar af leiðir berð þú ábyrgð gagnvart þjóðinni, hinum raunverulega eigenda RÚV.
Katrín, þú ert mennta- og menningarmálaráðherra og þjónustusamningurinn er gerður við þitt ráðuneyti. Þar af leiðir berð þú ábyrgð gagnvart okkur þjóðinni í hvurs almannaþágu þjónustusamningurinn var gerður.
Þess vegna þurfið þið að skilja hvernig farið hefur verið á bak við ykkur og forvera ykkar af RÚV ohf. Og í framhaldi af því: hvernig þið komið í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Fyrir ekki svo löngu fór ég við annan mann upp í Menntamálaráðuneyti daginn áður en þjónususamningurinn var lagður fram, til að hindra að samningurinn væri innihaldslaust plagg áður en svo mikið sem hann væri undirritaður. Okkur tókst að hindra að samningurinn færi frá ríkinu í mótsögnum við gildandi landslög og Evrópusamninga og viðurkenndar skilgreiningar á þekktum stærðum. Yfirstjórn RÚV hafði barist fyrir því að heimasoðnar skilgreiningar RÚV á skilgreindum hugtökum eins og íslensk framleiðsla, nýsköpun í dagskrárgerð og sjálfstæður framleiðandi yrðu hluti laganna. Þetta hefði þýtt að ekki hefði þurft að gefa í við íslenska dagskrárgerð því þeir sem sópuðu stúdíógólf eftir fréttaútsendingar hefðu verið skilgreindir sem íslenskir kvikmyndaframleiðendur - svo lengi sem þeir væru verktakar. Þetta náðist sem betur fer að stöðva í tæka tíð en það þýðir ekki að fjármálastjórn RÚV hafi breyst við að ohf kom fyrir aftan nafnið. Þetta sést best á þeim ófullkomnu tölum sem Mennta- og menningarmálaráðherra las upp í Alþingi um daginn og taldi að hún væri að lesa upp það sem eytt væri í íslenska nýsköpun í dagskrárgerð. Þegar rýnt var í tölurnar frá 2008-2009 kom fljótlega í ljós að blekkingaleikur RÚV hélt purkunarlaust áfram og ráðherranum var ýtt út á foraðið. Upphaflega talan hljóðaði upp á 177 milljónir en þegar búið var að draga frá liðinn talsetning á erlendu barnaefni sem er tæp 40% af heildarupphæðinni var eftir 108 milljónir. Miðað við samskipti mín við RÚV hvað þessi málefni varðar kæmi mér ekki stórlega á óvart ef að restin minnkaði eitthvað ef að farið væri út í hvað stæðist skilgreiningar þjónustusamningsins. Og ef að þessar tölur væru gerðar aðgengilegar stæði ekki á kvikmyndagerðarmönnum að rýna í þær ykkur að kostnaðarlausu.
Eftir sitjið þið, fulltrúar okkar eigendanna, og vonandi er það runnið upp fyrir ykkur að það er verið að svindla á okkur öllum. Eftirlitsaðilarnir - hin pólitískt skipaða stjórn RÚV - gerði svipað og aðrar eftirlitsstofnanir hafa gert undanfarin ár á Íslandi: sat aðgerðalítil og kvittaði upp á að allt væri í lagi, sama hvað á borð borið var. Það er í raun ekki við stjórn RÚV að sakast. Þetta er allt saman ágætisfólk en það hefur ENGAR FAGLEGAR FORSEMDUR til að takast á við blekkingar af þessu tagi. Það þarf að skipa í stjórnina með faglegar forsemdur að baki, í versta falli að fá þá þjónustu utan frá. Þá er ég að tala um fólk sem veit um hvað dagskrár- og kvikmyndagerð snýst og hvað er í raun á bak við þær tölur sem stjórn RÚV fær í hendurnar. Ég bendi á að formaður stjórnar RÚV, Svanhildur Kaaber, er búin að staðfesta hvernig ferlið fer fram og að stjórnin geti á engan hátt metið sannleiksgildi þess sem á borð er borið fyrir þau af útvarpsstjóra og félögum.
Í ljósi þess hversu snögg þú varst, Katrín, að hreinsa til í stjórn LÍN fyrir um það bil ári vænti ég þess að eitthvað gerir þú í málunum. Þú hlýtur að minnsta kosti að vera sammála um nausyn þess að fagfólk komi að stjórn RÚV, frekar en pólítíkusar, hvursu ágætir sem þeir kunna að hafa staðið sig á óskyldum vettvangi.
Einnig vænti ég þess, í ljósi þess hversu nauðsynlegt það var talið að allt í einu réðu fagleg sjónarmið því hver sæti í Seðlabankastjórastól ekki alls fyrir löngu, að fagleg sjónarmið verði látin ráða ferðinni hvernig tekið verði á málefnum RÚV ohf og ummælum útvarpsstjóra um að RÚV væri að hætta kaupum á íslenskum heimildamyndum og leiknum myndum. Ummæli sem komu í kjölfar hins stórkostlega niðurskurðar Kvikmyndamiðstöðvar sem þið kannist jú bæði við.
Ég hlakka til að fá frá ykkur fréttir hvað varðar RÚV og málefni þess. Ég hlakka líka til að fá fréttir um málefni KMÍ frá ykkur. Ég geri ekkert frekar ráð fyrir að fá frá ykkur svar við þessu lettersbréfi, aðgerðir ykkar í rétta átt eru mér nægjanlegt svar.
Bestu kveðjur,
Þorkell Sigurður Harðarson kvikmyndagerðarmaður.
PS: Ég læt fylgja með myndræna útfærslu á matreiðslu útvarpsstjóra á kostnaði við aðkeypta nýsköpun frá sjálfstæðum framleiðendum. Þetta minnir mig dálítið á rétt sem ég borða stundum hér í Bandaríkjunum, svokallaðan TURDUCKEN. Sem gæti útlagst Kalkandlingur. Þá er kalkúnn fylltur með önd sem er fyllt með litlum kjúklingi og allt bakað við vægan hitan í langan tíma. Páll Magnússon hefur borið á borð fyrir ykkur kalkún. Þegar búið er að skera frá óviðkomandi kostnað eins og talsetningu erlends barnaefnis, kemur í ljós að þið fenguð bara önd, og þegar búið er að fara í saumana á skilgreiningum þjónustusamningsins og efndum hans kemur í ljós að til skiptanna er einn mauksoðinn kjúklingsræfill sem kemst fyrir á undirskál. Þið getið smellt á myndina, prentað hana út og hengt upp á skrifstofum ykkar í ráðuneytum til að minna okkur á að við vorum öll plötuð, eftir stendur spurningin um hvað þið ætlið að gera í því?
http://bloggheimar.is/sultaninn/?p=36
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.