36 kvikmyndir staðfestar á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík | 27.7.2010
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram dagana 23. september til 3. október næstkomandi. Dagskrá hátíðarinnar er að taka á sig mynd þessa dagana og hafa 36 myndir nú verið staðfestar. Þá bárust þær fréttir nýlega að bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jim Jarmusch verður sérstakur heiðursgestur hátíðarinnar.
..meira

Kóngavegur til Sviss | 16.7.2010

Kvikmyndin Kóngavegur eftir Valdísi Óskarsdóttur hefur verið valin á kvikmyndahátíðina í Locarno í Sviss í ágúst. Myndin keppir í flokknum Filmmakers of the present. Valdís, Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarson verða viðstödd hátíðina.


..meira

Regnboginn - bíótek auglýsir eftir framkvæmdastjóra og rekstraraðila kaffihúss | 15.7.2010
Fyrirhugað félag um bíótek í Regnboganum óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Einnig er óskað eftir samstarfi við rekstraraðila kaffihúss og verslunar í húsinu. Stefnt er að því að Bíótek (Cinematheque) taki  til starfa í Regnboganum við Hverfisgötu í haust. Boðið verður uppá daglegar sýningar á fjölbreyttu úrval kvikmynda, gamalla og nýrra, úr öllum áttum og við hæfi allra aldurshópa. Einnig verður Regnboginn vettvangur kvikmyndahátíða og hverskyns viðburða á sviði kvikmynda. Þá mun Kvikmyndaskóli Íslands vera með starfsemi í húsinu yfir daginn, virka daga. Ætlunin er að kaffihús og verslun með mynddiska, bækur og annað kvikmyndatengt verði í húsinu.
..meira

Vefþáttaröð um íslenska tónlist | 9.7.2010

Vefþáttaröð um íslenska tónlist hefur hafið göngu sína. Þáttaröðin heitir Sleepless in Reykjavík og þegar hafa tveir þættir verið sendir út. Í þáttunum ræða umsjónarmenn við tónlistarfólk, fara á tónleika og fjalla á fjölbreyttan hátt um íslenska tónlist. Í þeim tveimur þáttum sem sendir hafa verið út er talað við hljómsveitina Reykjavík, Hjaltalín, skipuleggjendur Eistnaflugs og fleiri. Þættina má sjá á vefnum www.sir.is.


..meira

Regnboginn verður hjarta kvikmyndamenningar í landinu | 9.7.2010

Undirbúningshópur um bíótek (cinematheque) í Regnboganum við Hverfisgötu hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem ákvörðun borgarráðs um að veita alls 12 milljónum króna til verkefnisins er fagnað. Þar er sagt að fénu verði annars vegar varið í breytingar á forsölum og framhlið hússins og hinsvegar í að ýta starfseminni úr vör.


..meira

Tökur á Gauragangi eru hafnar | 9.7.2010
Tökur eru hafnar á kvikmyndinni Gauragangur og sjaldan eða aldrei hafa verið haldnar eins umfangsmiklar leikprufur fyrir kvikmynd á Íslandi því um 700 unglingar voru prófaðir í hlutverk fyrir myndina í áheyrnarprufum sem haldnar voru um allt land síðastliðið sumar. Það eru þau Alexander Briem og Hildur Berglind Arndal sem hrepptu aðalhlutverkin, eftir langar og strangar prufur.
..meira

Heimili kvikmyndinna í Regnboganum | 8.7.2010
Samþykkt hefur verið í borgarráði að veita hlutafélagi um rekstur Heimilis kvikmyndanna í Regnboganum tólf milljónir króna í rekstrar- og framkvæmdastyrk. Því verður draumur kvikmyndaunnenda um listrænt kvikmyndahús í Regnboganum að veruleika. Stefnt er að því að rekstur hefjist í húsinu hinn 1. september næstkomandi.
..meira

18 kvikmyndir staðfestar á RIFF | 7.7.2010
Nú styttist óðum í Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, en hátíðin verður haldin dagana 23. september til 3. október næstkomandi. Dagskrá hátíðarinnar er í mótun, en búist er við því að um 100 kvikmyndir verði sýndar á hátíðinni í ár. Nú þegar hafa 18 myndir verið staðfestar, og eru nokkrar afar áhugaverðar þar á meðal.
..meira

Um gerð Boðbera | 5.7.2010

Á Facebook síðu myndarinnar Boðberi sem frumsýnd verður 7. júlí næstkomandi er að finna skemmtilegt myndband um gerð myndarinnar. Í myndbandinu eru viðtöl við aðstandendur um fjármögnun, brellur og fleira.

Myndbandið er að finna hér.

 

Nánari upplýsingar um Boðbera er að finna á  Facebook síðu

myndarinnar og á www.bodberi.com.


..meira

Umfjöllun um íslenska kvikmyndagerðamenn í vefútgáfu Dazed and Confused | 1.7.2010

Viðtal við Kristínu Báru Haraldsdóttur og Hrefnu Hagalín, leikstjóra myndarinnar Knowledgy birtist í vefútgáfu tímaritsins Dazed and Confused. Í viðtalinu segja þær frá myndinni en hún fjallar um sértrúarsöfnuð sem byggður er á vísindakirkjunni. Talað er um að það þurfi mikið hugrekki til þess að gera grín að vísindakirkjunni en í henni eru margir sem hafa mikil áhrif í Hollywood. Kristín og Hrefna taka því þó vel og segja að það versta sem geti gerst sé að Tom Cruise banni þeim að vinna í Hollywood.

Viðtalið í heild má nálgast hér:
http://www.dazeddigital.com/ArtsAndCulture/article/7824/1/Knowledgy


..meira

               Gerast áskrifandi

Gætið að réttu netfangi.

Netfang: